Fréttir

Sundkona og sundkarl Akureyrar árið 2017 eru Bryndís Rún Hansen og Snævar Atli Halldórsson

Uppskeruhátíð Óðins fór fram laugardaginn 6. janúar en þar var farið yfir árangur liðins árs og ýmsir sundmenn heiðraðir. Að lokum var svo tilkynnt um val á sundfólki Akureyrar 2017 sem eru þau Bryndís Rún og Snævar Atli.

Uppskeruhátíð 6. janúar

Gleðilegt nýtt sundár! Á morgun, miðvikudag 3. janúar, hefjast aftur æfingar hjá öllum hópum félagsins. Við viljum biðja alla þá sem ekki ætla að halda áfram að æfa sund á nýju ári að láta vita sem allra fyrst með því að senda tölvupóst á odinn@odinn.is. Við viljum svo vekja athygli ykkar á því að næsta laugardag kl. 11 verður uppskeruhátíð Sundfélagsins Óðins haldin í sal Brekkuskóla. Uppskeruhátíð