Sólarhringssund Óðins

Hvað er sólarhringssund? Sólarhringssund er aðal fjáröflun félagsins ár hvert þar sem sundfólk í eldri hópum félagsins skiptist á um að synda boðsund í heilan sólarhring. Áður en að því kemur hafa krakkarnir safnað áheitum, bæði með því að ganga í hús og hjá fyrirtækjum. Allur ágóðinn rennur í ferðasjóð félagsins.

Hverjir synda? Höfrungar, Krókódílar, Framtíðarhópur, Úrvalshópur og Afrekshópur. Líkt og með aðrar fjáraflanir lítum við á sólarhringssund sem hluta af félagsstarfi Óðins þar sem allir taki þátt og leggi sitt af mörkum.

Undirbúningur: Dagana áður en sundið fer fram er safnað áheitum, sem er hin eiginlega fjáröflun. Annars vegar er safnað hjá fyrirtækjum, oftast með aðstoð foreldra. Hins vegar er gengið í hús hjá almenningi, oft tveir eða fleiri krakkar saman. Til að ekki fari fleiri en einn í sama fyrirtæki eða götu þarf að skipuleggja fyrirfram hver fer hvert. Hver sundmaður velur sér fyrirtæki og götur til að fara í og er það skráð niður. Hversu margar götur hver og einn tekur veltur auðvitað á stærð þeirra en æskilegt er að hver og einn taki að sér 5-6 fyrirtæki.

Tvenns konar áheit: Gefinn er kostur á tvenns konar áheitum. Annars vegar að heita ákveðinni krónutölu á hvern kílómetra sem syntur verður þann sólarhring sem sundið stendur yfir, eða leggja fram fasta upphæð.

Áheit hjá almenningi: Gengið í hús og tekið við frjálsum framlögum.

 Áheit hjá fyrirtækjum: Fyrirtæki þurfa að fá reikning fyrir þeim áheitum sem þau gefa. Söfnun hjá fyrirtækjum fer því þannig fram að fylltur er út miði fyrir umsaminni upphæð. Miðanum skilar sundmaðurinn til Óðins og síðan sér gjaldkeri félagsins um að senda út reikninga til að innheimta upphæðina. Þannig félagið sér um að innheimta hjá fyrirtækjum. Fylla þarf út allar upplýsingar á miðanum með undirskrift frá fyrirtækinu.

Sundið sjálft og skil á áheitum: Sundið stendur yfir frá kl. 15 á föstudegi til kl. 15 á laugardegi. Hver hópur þarf að mæta 2-3 þrisvar og elstu sundmennirnir (Afrekshópur) sjá um nóttina. Synt er boðsund þar sem hver og einn syndir 50 metra í einu og skiptir þá við næsta. Markmiðið er að ná a.m.k. 100 km samtals. Nánari upplýsingar um hvenær hver hópur eigi að synda kemur síðar.

Þegar sundmenn mæta í fyrsta sinn til að synda skila þeir áheitum sínum, þ.e. peningum sem safnast hafa hjá almenningi og miðum fyrir fyrirtækin.

Frábær skemmtun: Sólarhringssundið er frábær skemmtun fyrir krakkana, eflir félagsandann og er kærkomin tilbreyting í sundstarfinu. Foreldrar skiptast síðan á um að sitja og telja ferðirnar þannig að þetta er eitthvað sem allir geta tekið þátt í. Fyrir frekari upplýsingar getið þið haft samband við foreldraráð á netfangið fjaroflun@odinn.is

Nánari upplýsingar um sundið, áheit og talningavaktir koma síðar frá foreldraráði Óðins