Æfingar sundskólans hafnar

Vert er að minna á að æfingar sundskólans eftir jólafrí eru hafnar samkvæmt tímatöflu, bæði í Glerárlaug og Akureyrarlaug.

Foreldrar eru nú sem fyrr hvattir til að stuðla að góðri og reglulegri mætingu hjá börnum sínum. Slíkt leggur góðan grunn fyrir framtíðina. Það á við sundið eins og allt annað, að mikilvægt er að foreldrar sýni börnunum stuðning og áhuga á því sem þau eru að gera. :)