Vormót Óðins fór fram laugardaginn 9.maí þar sem 56 keppendur frá Sundfélaginu Óðni tóku þátt. Aðstæður voru með besta móti sem er mjög mikilvægt til að hægt sé að halda mót á heimavellinum. Mótið er mikilvægur þáttur í starfi Óðins þar sem yngstu iðkendur fá tækifæri til að öðlast keppnisreynslu en þetta er oft fyrsta mótið sem þeir taka þátt í.
Á mótinu var einnig verið að vígja nýjan tímatökubúnað og eiga tæknimennirnir okkar stórt hrós skilið fyrir frábæra vinnu við að koma þessu upp og keyra mótið áfram.
Frábært mót í alla staði og við þökkum öllum þeim sem komu að mótinu á einn eða annan hátt.
Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir af mótinu:






