Dagana 30. maí til 1. júní tóku 56 sundmenn frá Sundfélaginu Óðni þátt í VIT-HIT leikunum sem fram fóru á Akranesi. Mótið fór fram í frábæru veðri með minniháttar úrkomu á sunnudeginum.
Sundmennirnir stóðu sig með mikilli prýði og voru félaginu sínu til mikils sóma. Flestir voru að bæta tímana sína og rúmlega það. Þar sem þetta var síðasta mótið fyrir Íslandsmeistaramót aldursflokka (AMÍ) reyndu margir keppendur að ná lágmörkum fyrir þátttöku á því móti.
Sundfélagið Óðinn þakkar Sundfélagi Akraness kærlega fyrir vel skipulagt og skemmtilegt mót.
Næst á dagskrá hjá okkur er AMÍ sem verður haldið helgina 19-22 júní n.k. Við hlökkum til að taka á móti sem flestum þá!
Myndir frá mótinu má skoða hér.