Villi Norðurlandameistari

Vilhelm Hafþórsson varð í dag Norðurlandameistari í 200 skriðsundi á Norðurlandamóti fatlaðra sem fram fer í Finnlandi. Þetta er stórkostlegur árangur hjá þessum magnaða sundmanni.

Hann lét heldur ekki þar við sitja heldur vann silfur bæði í 100 m baksundi og 100 m skriðsundi og brons í 100 m flugsundi.

Hann syndir svo 50 m skriðsund og 100 m brungusund á morgun og er spennadi að sjá árangurinn þar.