VIÐ ERUM AÐ LEITA EFTIR SUNDÞJÁLFARA!

Hefur þú áhuga á því að þjálfa sund?

Sundfélagið Óðinn leitar eftir faglegum og öflugum einstaklingi til starfa hjá félaginu. 
Starfið felst í almennri þjálfun í sundi sem og þátttöku á mótum.

Um er að ræða 2 hópa, annars vegar krakkar á aldrinum 10-12 ára og hinsvegar 7-8 ára.

Reynsla af sundþjálfun og/eða menntun í íþróttafræðum er kostur.

Viðkomandi aðili þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. sept 2016

Upplýsingar um sundfélagið má finna á heimasíðu okkar www.odinn.is

Fyrirspurnir og umsóknir sendist á formann félagsins á netfangið formadur@odinn.is