Vegna fréttar í Fréttablaðinu

Vegna fréttar í Fréttablaðinu í morgun er rétt að það komi fram að Sundfélagið Óðinn hefur ekki gefið út neina opinbera yfirlýsingu hvað varðar höfnun erindis um lokun Akureyrarlaugar á meðan á Aldursflokkameistaramóti Íslands stendur. Félagið unir niðurstöðu íþróttaráðs og mun halda áfram að vinna að mótinu í fullri samvinnu við starfsfólk sundlaugarinnar, með það fyrir augum að gera mótið sem best og að allir komist sáttir frá, félagið, keppendur, starfsfólk, gestir laugarinnar og Akureyrarbær.

Stjórnin.