Vaktir fyrir AMÍ

Á fundi í Íþróttahöllinni í kvöld hófst skráning á vaktir á AMÍ. Á meðfylgjandi tengli er skráningin og biðjum við aðstandendur keppenda að skoða hvaða vaktir eru í boði og hafa síðan samband og láta vita hvaða vaktir þeir vilja skrá sig á. Rétt er að geta þess að öllum velunnurum félagsins er frjálst að taka þátt í framkvæmd mótsins, þó svo að þeir eigi ekki barn sem er að keppa.

Vaktir á AMÍ

Til að skrá sig (eða ef komnar skráningar hafa eitthvað riðlast) skal hafa samband við formann (formadur@odinn.is) eða Öldu (fjaroflun@odinn.is).