Úrslitasundin hjá NMU stöllum

Nanna og Bryndís stóðu sig ágætlega í úrslitum í gær. Þær náðu báðar að bæta árangur sinn um morguninn sem er mjög gott. Þær syntu síðan báðar í boðsundinu sem endaði í 5.sæti. Flottur dagur hjá þeim. Hægt er að fylgjast með öllu mótinu beint. Færeyingarnar eru að gera þetta mjög vel og taka virkilega vel á móti sínum gestum.

Við biðjum að heilsa heim í kuldann.
NMU hópurinn.