Uppskeruhátíð Óðins var haldin í sal Brekkuskóla laugardaginn 10 jan.

Bryndís Sundmaður Akureyrar 2014
Bryndís Sundmaður Akureyrar 2014

Uppskeruhátíð Óðins var haldin í sal Brekkuskóla laugardaginn 10 jan. Þar var farið yfir árangur liðins árs og sundmenn heiðraðir. Mæting var með því mesta sem hefur verið á hátíðina og skemmtu allir sér hið besta. Tilkynnt var um val á sundmanni Akureyrar 2014 sem er Bryndís Bolladóttir.

Bryndís er alin upp hjá sundfélaginu. Byrjaði sín fyrstu sundtök eins og svo margir aðrir upprennandi sundmenn hjá Dillu.

Bryndís náði frábærum árangri á tímabilinu. Þó að hún sé einungis 15 ára er hún ein af þremur bestu sprettsundskonum landsins. Hún synti sig örugglega inn í unglingalandslið á síðasta tímabili.
Bryndís keppti á Evrópumóti í Baku síðast liðið sumar og var það fyrna sterk keppni.  Hún stóð sig frábærlega.Frábær árangur hjá henni.
Nú í byrjun desember synti hún á Norðurlandameistaramótinu sem var haldið í Bergen og náði þar i
Bryndís er frábær íþróttamanneskja sem æfir vel. Hún gefur alltaf 100% vinnu í allt sem hún gerir.
Hún er til fyrirmyndar bæði við æfingar, nám og félagsmanneskja í sundfélaginu okkar.



Afreksviðurkenningar
Í Krókódílahópi, sem er eldri hópur félagsins fyrir börn með sérþarfir, fengu Axel Birkir Þórðarson og Tinna Rut Andrésdóttir viðurkenningar fyrir stigahæstu sund karla og kvenna. Í afrekshópi fengu viðurkenningu fyrir mestu bætingu á árinu Elín Kata Sigurgeirsdóttir og Baldur Logi Gautason. Stigahæsta sund karla átti Birgir Viktor Hannesson og stigahæsta sund kvenna Bryndís Bolladóttir.

Viðurkenningar fyrir ástundun og framfarir
Viðurkenningu fyrir ástundun fengu Rebekka Sif Ómarsdóttir í Úrvalshópi, Matthildur Eir Valdimarsdóttir í Framtíðarhópi og Breki Arnarsson í Krókódílahópi. Viðurkenningu fyrir framfarir í sundtækni fengu Elías Bessi Örvarsson í Framtíðarhópi, Aþena Arnarsdóttir í Úrvalshópi og Bergur Unnar Unnsteinsson í Krókódílahópi.

 

Íslandsmeistarar
Þá fengu þeir sem urðu Íslandsmeistarar á árinu 2013 viðurkenningu. Það voru:
Axel Birkir Þórðarson
Bergur Unnar Unnsteinsson
Bryndís Bolladóttir
Nanna Björk Barkardóttir
Tinna Rut Andrésdóttir

Viðurkenningar til sundskólans.
Eins og í fyrra afhentu krakkarnir í Afrekshópi viðurkenningarskjal krökkunum í sundskólanum. Þannig að þessi hefð er komin til með að vera.