Uppskeruhátíð Óðins 2025

Uppskeruhátíð Óðins fór fram utandyra þetta árið enda veðrið leikið við okkur hér norðan heiða síðustu daga. Eins og hefð er fyrir var boðið upp á dýrindis grillaðar pylsur og stóðu grillmeistarar okkar sig með stakri prýði. Foreldrafélagið fær mikið hrós fyrir skipulagningu og umgjörð í kringum uppskeruhátíðina. Við viljum líka að þakka þeim sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg til að gera þennan dag frábæran.

Nemendur Sundskólans fengu viðurkenningarskjöl fyrir ástundun vetrarins, og einnig voru elstu nemendur skólans útskrifaðir. Þá voru veittar viðurkenningar til eldri iðkenda, sem hér segir:

 

Krókódílar:

Besta ástundun: Rúnar Ásgeirsson

Bestu framfarir í sundtækni: Soffía Margrét Bragadóttir

 

Lundar:

Besta ástundun kvenna: Adríana Marín Einarsdóttir

Besta ástundun karla: Ingvar Þór Elmuson

Mestu framfarir kvenna: Hrafney Eiríksdóttir

Mestu framfarir kvenna: Þór Bjarnar Kristjánsson

 

Steinbítar:

Besta ástundun kvenna: Ísabella Jóhannsdóttir

Besta ástundun karla: Björn Elvar Austfjörð

Mestu framfarir í sundtækni karla: Magni Rafn Ragnarsson

Mestu framfarir í sundtækni kvenna: Lovísa Austfjörð Stefánsdóttir

Bestu framfarir karla: Jón Ingi Einarsson

Bestu framfarir kvenna: Friðrika Sif Ágústsdóttir

Fyrirmyndarsundmaður: Ísabella Jóhannsdóttir

Seiglubikarinn: Friðrika Sif Ágústsdóttir

 

Þau sem hlutu hinn veglega Speedostyrk voru:

Benedikt Már Þorvaldsson

Lovísa Austfjörð Stefánsdóttir

Bríet Laufey Ingimarsdóttir

 

Til hamingju með viðurkenningarnar og útskriftina og vonandi sjáum við ykkur öll á næsta tímabili!

Áfram Óðinn!