Uppskeruhátíð fyrir árið 2018

Laugardaginn 12. janúar kl. 11 verður uppskeruhátíð Sundfélagsins Óðins haldin í sal Brekkuskóla. Uppskeruhátíð er skemmtileg samverustund þar sem við njótum saman góðra veitinga, farið verður yfir árangur liðins árs, veittar viðurkenningar til sundmanna í eldri hópum og tilkynnt um val á sundfólki ársins 2018. Þá fá iðkendur í sundskólanum einnig afhent sérstök viðurkenningarskjöl.
 
Við leggjum áherslu á að uppskeruhátíð sé fyrir alla sundmenn í Óðni og fjölskyldur þeirra – allt frá sundskóla og upp úr. Það kostar að sjálfsögðu ekkert, en allir mæta með einn léttan rétt með sér á hlaðborð (t.d. köku, heitan rétt eða kex og osta) sem við gæðum okkur saman á í lokin. Drykkir verða á staðnum.
 
Fjölmennum og eigum saman skemmtilega stund!