Minnum á !! Uppskeruhátíð 10. janúar kl 11 í Brekkuskóla

Kæru sundmenn og foreldrar! Uppskeruhátíð Sundfélagsins Óðins verður haldin í sal
Brekkuskóla laugardaginn 10. janúar kl 11:00. Við leggjum áherslu á að
uppskeruhátíð er fyrir alla sundmenn í Óðni og fjölskyldur þeirra – allt frá
sundskóla og uppúr.

Við höfum þetta einfalt. Það kostar að sjálfsögðu ekkert en allir mæta með einn léttan
rétt með sér á hlaðborð (t.d. köku, heitan rétt eða kex og osta). Drykkir verða
á staðnum.

Hvað gerum við á uppskeruhátíð?

Uppskeruhátíð er skemmtileg samverustund þar sem við njótum saman góðra
veitinga, farið verður yfir árangur liðins árs og veittar viðurkenningar til
sundmanna í eldri hópum. Sundskólinn fær viðurkenningarskjöl. Þarna verður einnig tilkynnt um val á sundmanni Akureyrar 2014.

Við hvetjum alla í sundskólanum til að mæta. Það verða veitt viðurkenningarskjöl til þeirra og einnig viljum við fá hópmynd.

Fjölmennum og eigum saman skemmtilega stund.

Stjórn Óðins.