Unglingalandsmót UMFÍ

Gaman væri ef fólk léti vita af sér hér í athugasemdarkerfinu ef það hefur hug á að fara.

Hér má sjá upplýsingar um mótið með því að smella hér

 

 

selfoss_-_kort15. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina 2012. Þetta er í fyrsta skipti sem mótið er haldið á Selfossi en mótshaldarinn HSK sá einnig um framkvæmd mótsins í Þorlákshöfn árið 2008.

 

Undirbúningur mótsins er hafinn fyrir nokkur síðan og kominn vel á veg. Öll íþróttaaðstaða á Selfossi er til fyrirmyndar og það er ljóst að sú aðstaða sem keppendum verður boðið uppá er ein sú allra besta sem hefur verið á Unglingalandsmótunum. Tjaldsvæðið er í göngufæri við aðalkeppnissvæðið og þar eru framkvæmdir hafnar þannig að vel fari um gesti okkar sem þar koma til að vera.

 

 

Keppnisgjald er 6000 krónur á keppenda.