Syndum, landsátak í sundi 1. – 28. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki  í sundi frá 1. - 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra  landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin  þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er  frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja. Þetta átak  er framhald af Íþróttaviku Evrópu sem tókst einkar vel í ár. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að  kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi  meðal almennings. 

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega  lífi og nota meðal annars sund til þess. Munum eftir því hvað sund er frábært! 

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að  velja sér notendanafn og lykilorð og skrá síðan sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notendanafn  í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. 

Syndum saman hringinn í kringum Ísland. Þeir metrar sem þú syndir safnast saman og á forsíðu  www.syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt.  

Á heimasíðu Syndum www.syndum.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss annars  fróðleiks og upplýsingum um sundlaugar landsins. 

Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga. 

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Lindu Laufdal, verkefnastjóra  Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ í síma: 514-4016 eða á netfangið linda@isi.is 

Með sundkveðju 

 Almenningsíþróttasvið ÍSÍ