Sundfélagið Óðinn hélt í keppnisferð til Bergen í Noregi dagana 10.–15. júní þar sem sex sundmenn á 16. aldursári kepptu í ADO-sundhöllinni.
Hópurinn stóð sig frábærlega; allir bættu persónulega tíma sína og voru flest meðal fimm efstu í sínum aldursflokki. Hópurinn heimsótti meðal annars VilVite-vísindasafnið, fór með Fløibanen upp á Fløyen og naut þess að ganga um Bryggen og gamla bæinn.
Eitt af því eftirminnilegasta við ferðina voru þó skemmtileg endurfundir við gamla Óðinsfólkið. Hópurinn hitti Sigurlínu Þóru, eða Sillu, sem var yfirþjálfari Óðins á árunum 2000–2006. Silla átti stóran þátt í að móta sundskóla Óðins sem og framtíðar- og afreksstefnu félagsins sem enn er unnið eftir í dag.
Ekki síður ánægjulegt var að hitta son hennar, Sindra Þór, sem synti á sínum tíma með Óðni. Sindri á enn um fimmtán Akureyrarmet í einstaklingsgreinum. Hann átti síðar glæsilegan feril með Bergensvømmerne og norska landsliðinu og er í dag yfirþjálfari félagsins.
Ferðin gekk í alla staði afar vel. Sundmennirnir voru félaginu til fyrirmyndar, bæði innan laugar og utan, og engar óvæntar hindranir urðu á leiðinni – eða svo gott sem.
Strax við komuna til Bergen varð þó smá spenna þegar Ragga þjálfari uppgötvaði að ferðataskan hennar var læst og lykilorðið gleymt. Eftir nokkrar ágiskanir og símtal til vinar fannst rétta númerið og ferðin gat hafist með bros á vör.
Þegar heim var komið var ljóst að ferðin hafði skilað miklu meira en góðum árangri í lauginni. Hún gaf sundfólkinu dýrmæta reynslu, nýja sýn og ógleymanlegar minningar.
Það er krefjandi verkefni að stunda afreksmiðaðar sundæfingar í útilaug á Akureyri. Þegar sundmenn ná framhaldsskólaaldri eykst álagið einnig verulega með námi og öðrum skyldum og því verður sífellt erfiðara að samræma skóla og íþróttir. Þess vegna skipta ferðir sem þessi miklu máli. Þær gefa sundfólkinu tækifæri til að sjá nýtt umhverfi, kynnast sundfólki frá öðrum löndum og upplifa að sundíþróttin er miklu meira en æfingar og keppni. Hún skapar vináttu, reynslu og tækifæri sem nýtast langt út fyrir sundlaugina. Sundmennirnir eru dýrmætar fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur Óðins og vonandi verður þessi ferð þeim hvatning til að halda áfram að stefna hátt – bæði í sundinu og lífinu.