Sundfélagið Óðinn tvöfaldur bikarmeistari í 2. deild!

Sigurlið Sundfélagsins Óðins í 2. deild bikarkeppni Sundsambands Íslands. Efri röð frá vinstri: Ívan…
Sigurlið Sundfélagsins Óðins í 2. deild bikarkeppni Sundsambands Íslands. Efri röð frá vinstri: Ívan Elí Ólafsson, Jón Ingi Einarsson, Benedikt Már Þorvaldsson, Magni Rafn Ragnarsson og Alexander Reid McCormick. Á myndina vantar Lárus Högna Gunnarsson. Neðri röð frá vinstri: Ragnheiður Runólfsdóttir þjálfari, Viktoría Rós Guseva, Katrín Birta Birkisdóttir, Ísabella Jóhannsdóttir, Friðrika Sif Ágústsdóttir, Lovísa Austfjörð.

Sundfélagið Óðinn náði glæsilegum árangri í bikarkeppni Sundsambands Íslands sem fram fór í Vatnaveröld í Reykjanesbæ laugardaginn 26. september. Bæði karla- og kvennalið félagsins stóðu uppi sem sigurvegarar í 2. deild og tryggðu Óðni þar með tvo bikarmeistaratitla!

Kvennalið Óðins sigraði með 133 stig og karlaliðið með 154 stig. Um er að ræða frábæran árangur hjá sundfólki félagsins sem sýndi mikla baráttu og liðsheild í keppninni.

Kvennalið Óðins

  • Friðrika Sif Ágústsdóttir

  • Viktoría Rós Guseva

  • Katrín Birta Birkisdóttir

  • Lovísa Austfjörð

  • Ísabella Jóhannsdóttir

Karlalið Óðins

  • Ívan Elí Ólafsson

  • Jón Ingi Einarsson

  • Benedikt Már Þorvaldsson

  • Magni Rafn Ragnarsson

  • Alexander Reid McCormick

  • Lárus Högni Gunnarsson

Þjálfari liðanna var Ragnheiður Runólfsdóttir.

Sundfélagið Óðinn óskar öllu sundfólkinu og þjálfara innilega til hamingju með frábæran árangur. Þessir tveir bikarmeistaratitlar eru félaginu mikil gleðitíðindi og góð viðurkenning fyrir þá vinnu sem lögð er í æfingar og keppni.

Áfram Óðinn!