ÍM25 2026 – Íslandsmet, Íslandsmeistaratitill og fjölmargar bætingar
Sundfólk Óðins stóð sig frábærlega Íslands- og unglingameistaramótinu í 25 metra laug sem fram fór í Reykjavík dagana 13.–15. nóvember.
Jón Ingi Einarsson átti mjög gott mót. Hann varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn þegar hann sigraði í 50 metra flugsundi í unglingaflokki.
Jón Ingi setti einnig nýtt Íslandsmet í 50 metra skriðsundi í flokki 15 ára og yngri þegar hann synti á 24,08 sekúndum. Metið hafði staðið í sjö ár. Tíminn var jafnframt nýtt Akureyrarmet í flokki 15–17 ára og í opnum flokki.
Jón Ingi vann samtals átta verðlaun á mótinu, gull í 50 m flugsundi, silfur í 50 m skriðsundi og 100 m fjórsundi og brons í 200 m og 400 m fjórsundi í unglingaflokki, auk bronsverðlauna í 50 m skriðsundi, 100 m fjórsundi og 400 m fjórsundi í opnum flokki.
Einnig sló Jón Ingi nýtt Akureyrarmet í 100m skriðsundi í aldursflokknum 15 - 17 ára.
Alexander Reid McCormick átti einnig gott mót og vann bronsverðlaun í 100 metra bringusundi í unglingaflokki. Hann setti auk þess ný Akureyrarmet í 50 og 100 metra bringusundi í aldursflokknum 15–17 ára.
Benedikt Már Þorvaldsson hafnaði í 3. sæti í 200m bringusundi í unglingaflokki á seinasta degi mótsins, glæsilegur árangur hjá honum.
Drengjasveitir Óðins settu ný Akureyrarmet í 4×50 m fjórsundi og 4×200 m skriðsundi. Sveitirnar voru skipaðar Alexander Reid McCormick, Birni Elvari Austfjörð, Ívani Elí Ólafssyni, Jóni Inga Einarssyni og Magna Rafni Ragnarssyni.
Auk verðlauna og meta náðist góður árangur hjá sundfólki Óðins í fjölmörgum greinum.
Eftirfarandi sundmenn komust í úrslit á mótinu:
Í heildina var ÍM25 afar vel heppnað mót hjá Sundfélaginu Óðni þar sem bæði einstaklingsafrek og góður árangur hópsins settu svip sinn á helgina.
Við þökkum SSÍ fyrir frábæra helgi og hlökkum til komandi móta.
Fleiri myndir má finna á flickr síðu SSÍ með því að smella HÉR.