Sundæfingar hefjast

Nú er haustið alveg að fara af stað hjá okkur. Við erum að klára að ganga frá þjálfaramálum og æfingatöflu þar sem mjög erfitt getur verið að pússla öllu saman.
Afrekshópur er byrjaður að æfa en allir aðrir hópar byrja þriðjud. 1. sept.
Tímatatöflur eru komnar á hreint og eru aðgengilegar á heimasíðunni. 
Við munum senda póst strax eftir helgina á alla foreldra með upplýsingum um það í hvaða hóp barnið er í. 

Ef þú vilt skrá barn í sund þá sendir þú póst á odinn@odinn.is með upplýsingum um fullt nafn og kennitölu.
Æfingagjöld
Æfingagjöld verða innheimt með sama hætti og í fyrra, þ.e. í gegnum Nori kerfið. Foreldrar munu póst með öllum upplýsingum um það í byrjun sept þegar opnað verður fyrir skráningu í Nori kerfið.