SUND SEM LÍKAMSRÆKT! SUNDNÁMSKEIÐ FYRIR FULLORÐNA

 

Æfingar Garpa 18 ára og eldri hefjast 13. september. Sundfélagið ætlar að bjóða upp á tvískipt námskeið í haust.

  1. Tvö 7 vikna sundnámskeið, hið fyrra hefst mánudaginn 13. september og lýkur fimmtudaginn 28. október. Hið síðara hefst mánudaginn 1. nóvember og lýkur fimmtudaginn 16. desember. Kennt verður tvisvar í viku í Sundlaug Akureyrar, á mánudögum og fimmtudögum kl. 19:30 – 20:30. Einnig fá þátttakendur æfingaplan sem þeir geta synt eftir sjálfir á þeim tíma sem þeim hentar. Hentar vel fyrir þá sem vilja t.d. læra skriðsund en vilja ekki binda sig alla önnina. Námskeiðsgjald er 16.000 kr. Fyrir hvort námskeið. Iðkendur þurfa að greiða fyrir aðgang að sundlauginni eigi þeir ekki sundkort.

  2. Sundnámskeið sem hefst mánudaginn 13. september og lýkur 21. desember. Kennari verður á bakka mánudaga og fimmtudaga kl. kl. 19:30 – 20:30. Þátttakendur fá einnig æfingaprógramm til að synda eftir á þeim tímum sem þeim hentar. Hentar vel þeim sem þurfa meiri sveigjanleika og vilja gera sund að lífstíl en synda eftir æfingaprógrammi undir handleiðslu þjálfara. Námskeiðsgjald er 25.000 kr. Iðkendur að greiða fyrir aðgang að sundlauginni eigi þeir ekki sundkort.

Garpar er sundhópur fyrir fólk 18 ára og eldri, jafnt byrjendur sem lengra komna sem hafa áhuga á að stunda góða hreyfingu í skemmtilegum félagsskap. Æfingar miða að því að læra réttu sundtökin, auka samhæfni, laga tæknina auk þess að styrkja og auka úthaldið. Aðal markmiðið er ánægja og vellíðan með áherslu á að bæta þol og tækni í sundi.

Nánari upplýsingar í gegnum netfangið odinn@odinn.is og skráningar fara fram í gegnum Nori kerfið https://iba.felog.is/. ATH. takmarkaður fjöldi.

Sundþjálfari Garpa er Kristjana Pálsdóttir, lýðheilsufræðingur. Hún hefur æft sund í mörg ár, þjálfað yngri flokka félagsins og er einstök áhugamanneskja um heilbrigðan lífsstíl á öllum aldri. Sundfélagið er virkilega ánægt með þessa öflugu viðbót við þjálfarateymi félagsins.