Bætingar og ný Akureyrarmet á Íslands- og unglingameistaramótinu í 25 m laug

 

Sterk frammistaða sundmanna Óðins á Íslands- og unglingameistaramóti í 25m laug

Um helgina fór fram Íslands- og unglingameistaramótið í 25m laug sem var haldið í Laugardalslaug í Reykjavík. Sundfélagið Óðinn átti þar 14 keppendur en þetta er með fjölmennari hópum sem félagið hefur sent á Íslandsmeistaramót.

Lið Óðins átti góða helgi og kom heim með silfur- og bronsverðlaun í unglingaflokki, auk silfurverðlauna og þriggja bronsverðlauna í opnum flokki. Einnig slóu þeir Örn Kató Arnarsson og Jón Ingi Einarsson fjölmörg Akureyrarmet.

 

Frábær árangur og ný Akureyrarmet

Örn Kató Arnarsson vann til silfurverðlauna í 800 m skriðsundi í opnum flokki á tímanum 8:32.78 og bætti þar eigið Akureyrarmet.
Hann bætti svo um betur með bronsverðlaunum í 1500 m skriðsundi í opnum flokki á tímanum 16:07.73 þar sem hann setti nýtt Akureyrarmet. Gamla metið átti Sindri Þór Jakobsson frá árinu 2007.

Örn Kató sló einnig Akureyrarmet í 400 m skriðsundi á tímanum 4:09.73, en gamla metið, 4:10.98, átti einnig Sindri Þór Jakobsson frá árinu 2007.

Að auki bætti Örn Kató Akureyrarmet í 200 m bringusundi á tímanum 2:27.13, en eldra metið átti Snævar Atli Halldórsson frá árinu 2017.

Svava Björg Lárusdóttir vann til bronsverðlauna í 50 m flugsundi í opnum flokki á tímanum 30.06 og bætti við öðru bronsi í 100 m fjórsundi á tímanum 1:10.13.

Ívan Elí Ólafsson hafnaði í 3. sæti í 50 m baksundi í unglingaflokki á tímanum 31.23.

Jón Ingi Einarsson varð í 2. sæti í 50 m baksundi í unglingaflokki á tímanum 29.65.
Hann sló jafnframt 36 ára gamalt Akureyrarmet í 100 m skriðsundi á tímanum 58.30, en gamla metið átti Gísli Pálsson.

Jón Ingi bætti einnig eigin Akureyrarmet í 50 m og 100 m baksundi, 100 m fjórsundi, 50 m skriðsundi og 100 m flugsundi í aldursflokknum 13–14 ára.

Að lokum syntu Örn Kató Arnarsson, Alexander Reid McCormick, Magni Rafn Ragnarsson og Jón Ingi Einarsson 4x200 m skriðsund á tímanum 8:30.38, sem er nýtt Akureyrarmet í boðsundi. Eldra metið, 8:40.01, var sett árið 2016.

Yfir 90% bæting hjá liðinu

Alls voru 22 úrslitasund synt af sundmönnum Óðins um helgina.
Liðið sýndi góðan árangur þar sem yfir 90% sundanna voru bætingar og 6 af 14 keppendum bættu sig í öllum sínum greinum.

Sundmenn frá Óðni sem kepptu í úrslitum:

Alexander Reid McCormick – 200 m skriðsund • 400 m skriðsund • 1500 m skriðsund
Benedikt Már Þorvaldsson – 200 m bringusund
Friðrika Sif Ágústsdóttir – 400 m fjórsund • 200 m flugsund
Ísabella Jóhannsdóttir – 200 m bringusund • 50 m bringusund • 100 m fjórsund
Ívan Elí Ólafsson – 50 m baksund • 100 m baksund
Jón Ingi Einarsson – 50 m baksund • 100 m baksund • 100 m fjórsund • 50 m skriðsund
Lovísa Austfjörð Stefánsdóttir – 50 m baksund
Magni Rafn Ragnarsson – 200 m bringusund • 100 m bringusund • 50 m bringusund
Svava Björg Lárusdóttir – 50 m flugsund • 100 m flugsund • 100 m fjórsund • 50 m skriðsund • 1500 m skriðsund
Örn Kató Arnarsson – 400 m skriðsund • 800 m skriðsund • 1500 m skriðsund • 100 m bringusund

 

Sundfélagið Óðinn er afar stolt af frábærri frammistöðu keppenda sinna og þakkar þjálfurum, fararstjórum og aðstandendum fyrir gott mót um helgina.