Sprettsundmót / afmælismót 15. sept

Kæru félagar, 50 ára afmælisdagskrá félagsins er óðum að skýrast. Laugardaginn 15. sept verður Afmælissprettsundmót og gamlir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir að taka þátt. Eftir sundmótið verður verðlaunaafhending og afmælisboð fyrir þátttakendur, að öllum líkindum í Brekkuskóla. Seinna um kvöldið verður svo reunion fyrir gamlra félaga, fyrrum þjálfara, stjórnarmeðlima og foreldra í gegnum tíðina. Gert er ráð fyrir að það hefjist kl.20.00 og er áætluð staðsetning er Lón,Hrísalundi og verður boðið uppá hlaðborð og skemmtiatriði. Kostnaði verður stillt í hóf. Hlökkum til að gleðjast saman á merkilegum tímamótum:-)
kveðja
Afmælisnefndin