Sprengimót Óðins 19. - 20. september í Sundlaug Akureyrar

Sprengimót Óðins hefur aldrei verið stærra og verða um 150 þátttakendur frá átta sundfélögum víðsvegar að af landinu.

Sundmótið fer fram í aðalsundlaug Sundlaugar Akureyrar og verður hún lokuð fyrir almenningi á meðan á upphitun og keppni stendur. Um er að ræða þrjá mótshluta, tvo á laugardegi og einn á sunnudegi og verður laugin opinn á milli mótshluta:

Mótshluti nr. 1 - Laugardagur kl. 09:00 -12:15

Mótshluti nr. 2 - Laugardagur kl. 14:00 - 16:45

Mótshluti nr. 3 - Sunnudagur kl. 09:00 - 12:20

Styrktaraðilar Sprengimótsins eru eftirfarandi og þakkar sundfélagið kærlega fyrir þeirra ómetanlega framlag.