Sprengimót Óðins 19. - 20. september í Sundlaug Akureyrar

Sprengimót Óðins

Sprengimót Óðins verður haldið 19. - 20. september næstkomandi í Sundlaug Akureyrar. Mótið er sprettsundmót og opið fyrir öll félög á landinu.

Skipulag og greinaröðun.
Mótið er hugsað fyrir keppendur 11 ára og eldri. Veitt verða verðlaun í einstaklingsgreinum, í aldursflokkum 11-12 ára, 13-14 ára og 15 ára og eldri. Mótið byrjar kl. 10:00 (upphitun klst. fyrr) á laugardeginum og er í þremur hlutum með fyrirvara um breytingar vegna þátttöku.

Hluti: 1 Laugardagur fyrir hádegi - Byrjar kl 10:00 (Upphitun kl. 9:00)

Greinar:

1 Konur 50 Skriðsund

2 Karlar 50 Skriðsund

3 Konur 200 Baksund

4 Karlar 200 Baksund

5 Konur 100 Bringusund

6 Karlar 100 Bringusund

7 Konur 50 Flugsund

8 Karlar 50 Flugsund

9 Konur 200 Skriðsund

10 Karlar 200 Skriðsund

11 Konur 200 Bringusund Boðsund

12 Karlar 200 Bringusund Boðsund

Hluti: 2 Laugardagur eftir hádegi - Byrjar kl. 15:00 (Upphitun kl. 14)

Greinar:

13 Konur 100 Fjórsund

14 Karlar 100 Fjórsund

15 Konur 50 Bringusund

16 Karlar 50 Bringusund

17 Konur 100 Baksund

18 Karlar 100 Baksund

19 Konur 200 Flugsund Boðsund

20 Karlar 200 Flugsund Boðsund

Hluti: 3 Sunnudagur fyrir hádegi - Byrjar kl 10:00 (Upphitun kl. 9:00)

Grein

21 Konur 100 Skriðsund

22 Karlar 100 Skriðsund

23 Konur 200 Bringusund

24 Karlar 200 Bringusund

25 Konur 50 Baksund

26 Karlar 50 Baksund

27 Konur 100 Flugsund

28 Karlar 100 Flugsund

29 Konur 200 Fjórsund

30 Karlar 200 Fjórsund

31 Blandað 400 Skriðsund Boðsund (8x50m skriðsund, 4 konur, 4 karlar, röðun frjáls)

Félög þurfa að tilkynna þátttöku ásamt fjölda fyrir. 7. sSeptember á netfangið: gjaldkeri@odinn.is

Skráningarfrestur er til 11. september en skráningum skal skilað á netfangið: unnurak@gmail.com

Gisting, matur og skráningargjöld
Innheimt verða skráningargjöld, 550 kr. fyrir einstaklingsgreinar og 800 kr. fyrir boðsund.

Því miður verður ekki hægt að bjóða upp á mat og gistingu í skóla eins og hefð er fyrir. Vegna Covid 19 leyfa skólarnir ekki gistingu. Óðinn hefur kannað gistipakka hjá Hótel KEA, Icelandair Hótel og Hótel Kjarnalundi. Tvö fyrrnefndu eru staðsett steinsnar frá sundlauginni. Hótel Kjarnalundur er við útivistarparadís Akureyringa Kjarnaskóg.  Hótelin veita afslátt af gistingu og morgunverði og Hótel Kea býður upp á aukadýnu inn á herbergi. Til að fá afsláttinn þarf að nefna að gisting sé vegna Sprengimóts Óðins.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Akureyri!