Sportabler tekið í notkun

Sundfélagið Óðinn er að taka í gagnið nýtt forrit/app sem heitir Sportabler sem er íslenskt vef- og snjallsímaforrit sem einfaldar alla viðburðastjórnun, samskipti og utanumhald íþróttastarfsins. Stefnan er að færa allar upplýsingar um æfingar, dagskrá og samskipti sundhópanna frá Facebook yfir á Sportabler.
 
Iðkendur/foreldrar þetta þurfið þið að gera:
ATH: Þetta á bara við um þá sem eru að skrá sig í fyrsta skipti á Sportabler, hjá þeim sem núþegar eru notendur ætti þessi nýi hópur núþegar að birtast hjá leikmanni/aðstandandi.
1. Skrá í Hóp hér https://www.sportabler.com/optin
2. Kóði flokkana eru:
  • Krókódílar E8JND8 
  • Höfrungar 663YHQ
  • Framtíðarhópur SBWAW9
  • Úrvalshópur 9VOLZJ
  • Afrekshópur ISURB7
3. Fylla inn skráningaupplýsingar: Velja "Ég er leikmaður" / "Ég er foreldri" eftir því sem við á - bæði iðkendur og aðstandendur geta skráð sig.
4. Staðfesta netfang í tölvupósti sem þið fáið frá Sportabler: Smella á "hér" þá opnast nýr gluggi (Muna eftir að athuga ruslpóst/spam folder).
5. Búa til lykilorð
6. Allt klárt ! Skrá sig inn og þá ætti "Mín Dagskrá" að taka á móti ykkur.
7. Ná í appið og skrá inn - ef þið eruð ekki búin að því (Appstore eða Google play store)
8. Endilega leyfa "Push notification". Setja inn prófil-mynd af iðkenda og aðstandenda (hægt að gera bæði í appi og á vef).
Ef þið lendið í vandræðum má hafa samband við þjónustuver Sportabler í gegnum gylltu spjallblöðrunni neðst hægra megin á heimasíðu okkar ( www.sportabler.com)

Ef einhverjar spurningar endilega sendið fyrirspurn í skilaboðum á Facebook síðu Óðins  eða netfangið odinn@odinn.is.
 
Gangi ykkur vel!