Speedo kort

Góðan dag,

Nú er Speedo að fara í gang með nýtt Speedo kort - afsláttarkort fyrir iðkendur í sundfélögum/deildum til kaupa á Speedo vörum.

Þar sem Speedo er samstarfsaðili Sundfélagsins Óðins þá fá þeir einstaklingar sem eru að æfa hjá Óðni (ef þeir kjósa það) slíkt kort og geta notað það í ákveðnum íþróttaverslunum þegar keyptar eru  Speedo vörur. Þannig fæst 20 % afsl. af Speedo vörum. Nánari upplýsingar um kortið kemur með því þegar það kemur í pósti.

Til þess að viðkomandi aðilar geti fengið kortið heim til sín þurfum við að senda Speedo upplýsingar um þá sem æfa hjá okkur, þ.e. fullt nafn og heimilisfang.
Áður en við sendum slíkar upplýsingar frá okkur viljum við kanna hvort það er einhver sem er á móti því að slíkar upplýsingar verði sendar um iðkanda.

Ef þið afþakkið Speedo kort þá megið þið endilega senda okkur upplýsingar með nafni iðkanda og einnig í hvaða hóp iðkandi er á netfangið odinn@odinn.is
Í síðasta lagi sunnudaginn 3. nóv.

ATH: það þarf bara að senda póst ef þið hafið EKKI áhuga á að láta senda þessar upplýsingar og fá Speedo kort

Kveðja,
Stjórn Sundfélagsins Óðins