Söludagur - Nýju gallarnir komnir

Það verður söludagur á skrifstofu Sundfélagsins (gamla íþróttahúsinu í Laugargötu á 2. hæð), þriðjudaginn 29. nóv kl. 17:30 - 18:30. Óðinsgallarnir eru komnir, þannig að þeir sem pöntuðu galla geta nálgast hann á þessum tíma.

Einnig verður hægt að kaupa, stuttbuxur, stuttermaboli, sundhettur og brúsa. Eigum einnig eitthvað smá af peysum til.

Þeir sem pöntuðu galla en komast ekki á þessum tíma er velkomið að hafa samband við Höllu Garðarsdóttur, gjaldkera og starfsmann félagsins, og finna annan tíma. Sími: 867-5667 Netfang: odinn@odinn.is

Það verður því miður ekki posi á staðnum