Söludagur í Laugagötu

Við ætlum að vera með söludag á vörum félagsins miðvikudaginn 16.nóv kl. 16:30-17:00
Við verðum komin með froskalappir í fleiri stærðum og svo eigum við mikið af nýju stutterma bolunum (verð 3500 kr) og nýju stuttbuxunum (verð 3000 )

Auk þess erum við með sundgleraugu, sundhettur, renndar hettupeysur, litla bakpoka/sundpoka, millifótakút,  o.fl.
Svo er enn eitthvað eftir á tilboðsslánni hjá okkur (eldri Óðinsvörur á 1000 og 1500 kr)

ATH við erum ekki með posa og því þarf að hafa pening með sér.

Við verðum á skrifstofunni okkar á 2. hæð í Laugargötu (hvíta húsið á milli sundlaugar og Brekkuskóla, gengið inn að austan)

Við munum svo vera með síðasta söludag fyrir jól í kringum miðjan desember