Sólarhringssund 2026

Sólarhringssund er aðal fjáröflun félagsins ár hvert þar sem sundfólk í eldri hópum félagsins skiptist á að synda boðsund í heilan sólarhring.
Síðustu daga hafa krakkarnari safnað áheitum, bæði með því að ganga í hús og hjá fyrirtækjum. Allur ágóði rennur í ferðasjóð iðkenda.
 
Byrjum að synda kl 15 í dag á braut sex og syndum inní sumarið, stefnan er að ná að synda 100 km á þessum sólahring.
 
Þeir sem vilja heita á okkur geta komið við í sundlauginn og sett í baukinn okkar sem verður í afgreiðslunni eða lagt inná á reikninginn hjá okkur.
 
reikningsnúmer: 565-14-309
kennitala. 560119-2590