Sólarhringssund 2025 - uppgjör og þakkir

Hið árlega sólarhringssund fór fram dagana 23. og 24. apríl þar sem iðkendur úr keppnishópum mættu og syntu boðsund í hollum.

Aldrei, svo ég muni, hefur sundhópurinn sem synt hefur í sólahringsundinu verið jafn ungur en elstu iðkendurnir okkar í dag eru á 15 ári að frátöldum Krókódílum og Görpum. Við fengum alveg einstaklega gott veður þennan sólarhring og eru allir með alveg ágætis "tanfar" eftir sundið ;) 

Sólarhringssundið er aðal fjáröflun félagsins og eflaust sú elsta líka. Síðustu ár höfum við synt inn í sumarið sem hefur fallið í góðan jarðveg og er
stefnan að hafa sólarhringssundið á þessum tíma í komandi framtíð. Það er alltaf byrjað að synda klukkan 15:00 á miðvikudeginum og lýkur þá sundi klukkan 15:00 á sumardaginn fyrsta. Allur ágóði af sundinu fer í æfingaferðir iðkenda en einnig er keppnisferð á Vit-Hit leikana á Akranesi niðurgreidd að hluta. Vit-Hit leikarnir er eina mótið sem allir hóparnir sem synda í Sólarhringsundinu fara saman á. Núna í lok sumars eru svo elstu iðkendurnir okkar í Sverðfiskum, Sprettfiskum og Steinbítum að fara í æfingaferð til Svíþjóðar en reynt er að fara erlendis í æfingarferðir annað hvert ár. Krókódílarnir okkar fóru svo til Svíþjóðar fyrir skemmstu þar sem var mikið fjör. 

Markmiðið hefur alltaf verið að synda 100 kílómetrana. Þau 10 ár sem ég hef átt barn sem er að synda í sólarhringssundinu man ég ekki til þess að þessu takmarki hafi ekki verið náð. Ég var þó á báðum áttum hvort það tækist í ár þar sem að sundhópurinn var svo ungur og eins og ég sagði hér að ofan man ég ekki til þess að hann hafi verið svona ungur áður en krakkarnir sem oftast voru að synda í gegnum nóttina voru á aldrinum 14-18 ára allavegana.

Ég er því alveg ótrúlega stolt af krökkunum okkar að hafa náð takmarkinu sem er sett ár hvert og það ekki bara rétt sleikt, heldur farið alveg rúmlega 12 kílómetra umfram. Í ár var synt 112,45 km sem er frábær árangur og þegar öll áheit hafa skilað sér inn verður andvirði kílómetersins í kringum 14.000 krónur og því óhætt að segja að krakkarnir hafi staðið sig alveg ótrúlega vel bæði ofan í lauginni og einnig í að safna áheitum.

Lundar sem eru á aldrinum 9 - 11 ára störtuðu sundinu klukkan 15:00 þann 23. apríl og syntu til klukkan 17:00. Á þessum tveim tímum syntu þau um 6 km.
Höfrungar sem er yngsti keppnishópurinn okkar og jafnframt elsti hópurinn í sundskólanum hjá Dillu. Þau byrjuðu að keppa á heimamótum í vetur til að prufa sig aðeins áfram í keppnum og fóru svo með okkur á Vit-hit leikana á
Akranesi síðustu helgina í maí. Þessir krakkar eru 8 – 9 ára og syntu þau í klukkutíma og náðu um 3 kílómetrum.
Á eftir þeim mættu Krókódílarnir okkar sem eru hópur fatlaðra, í þeim hópi eru einungis 4 sundmenn sem mættu með bros á vör til að synda. Með þeim mættu Garparnir okkar sem eru eldri sundmenn og æfa þrisvar sinnum í viku. Þau syntu einnig í klukkutíma líkt og Höfrungarnir og syntu um 3.5 kílómetra.


Lundarnir okkar mættu svo aftur ásamt Sverðfiskum sem er 2013 árgangurinn okkar og dekkuðu þau tímann frá klukkan 19:00 – 22:00. Þau
voru heldur betur ekki til í að hætta að synda þegar foreldrar og þjálfarar mættu til að taka við af þeim. Ef þau hefðu fengið að ráða hefðu þau synt alla nóttina líka. En á þessum þrem tímum syntu þau um 9 km. Foreldrar og þjálfarar kvörtuðu yfir alltof stuttum tíma í fyrra vegna góðrar
þátttöku. Í ár var því þeirra “slott” lengt í tvo tíma og mun það sjálfsagt halda sér þannig á meðan mætingin er svona góð. Þetta er tilvalið hópefli
fyrir foreldra sem fengu einnig boð á sundæfingu hjá Kristjönu yfirþjálfara til að koma sér í gírinn. Foreldrateymið hefur því aldrei verið svona vel synt. Foreldra og þjálfarar skiluðu heilum 8 km í hús.

Rétt fyrir miðnætti mætti stórskotaliðið í Sprettfiskum og Steinbítum, eða elstu iðkendurnir okkar í keppnishópum, með allt sitt hafurtask og komu sér vel fyrir í anddyri sundlaugarinnar til að synda yfir nóttina. Þau stungu sér útí laugina um miðnætti til að taka við af “gamla fólkinu”. Það mættu um 16 krakkar til að synda í gegnum nóttina á aldrinum 12 - 15 ára og þau syntu fram undir morgun eða til klukkan 7:00. Þau syntu um 41.5 km, hraðasti klukkutíminn var milli 3 og 4 um nóttina en á þeim klukkutíma syntu þau 6.95 km.

Næstu tvo tímana mættu þreyttir foreldrar og gamlir sundmenn, eða þeir sem náðu að vakna og voru ekki ósundhæfir af strengjum frá kvöldinu áður, hörkutólin og syntu um 8 km. Lundarnir og Sverðfiskarnir mættu eldsprækir á eftir þeim, þau áttu sko nóg eftir og syntu tæplega 7 km, ásamt sínum hraðasta klukkutíma en þau fóru mest 3.5 km á einum klukkutíma.
Á eftir þeim komu höfrungarnir og bættu einnig sinn tíma um 450 metra frá deginum áður Krókódílar og Garpar komu í humátt á eftir þeim og bættu sinn tíma um 500 metra.

Stórskotaliðið mætti svo aftur og kláraði síðustu tvo tíma, þau fengu þó hjálp síðasta hálftímann frá þeim krökkum sem voru ekki komnir með nóg af sundinu og vildu ólm synda meira. Það er svo venja að síðustu 5 mínúturnar er ormurinn syntur en þá koma
allir í laugina og synda í einni halarófu, halda með annarri hendi í aðra löppina á sundmanninum fyrir framan þau og synda þannig þar til
sólarhringurinn er liðinn klukkan 15:00.

Það má með sanni segja að við eigum einstaklega efnilegt og flott sundfólk sem á framtíðina fyrir sér. Þau sýndu það og sönnuðu enn eitt árið að það er ekkert sem stoppar þau. Þau setja sér stór markmið og það er ekkert gefið eftir fyrr en þeim er náð. Það er ekkert sem heitir að gefast upp eins og Dilla okkar allra besta segir alltaf “erfitt þýðir ekki ómögulegt”.

Við þökkum öllum þeim sem að komu með einhverjum hætti að sundinu fyrir, hvort sem það var með áheitum, peppi eða næringu af einhverjum
toga.

Katrín Sif
f.h. Foreldraráðs Sundfélagsins Óðins