Skráning iðkenda og greiðsla æfingagjalda haustönn 2020

Líkt og síðustu ár eru æfingagjöld innheimt í gegnum Nori kerfið sem finna má neðst á heimasíðu Óðins.
Ganga þarf frá skráningu og greiðslu fyrir fimmtudaginn 10. september.

Samið hefur verið við Sundlaug Akureyrar að börn sem æfa sund hjá Óðni fá árskort í laugina, það er háð því að gengið hefur verið frá æfingagjöldum í gegnum Nori kerfið, þ.e. foreldrar skráð börnin þar inn. Það er því mjög mikilvægt að allir verði búnir að skrá sín börn inn í kerfið þann dag svo börnin geti nálgast árskortin sín mánudaginn 14. september.

Linkur fyrir Nori kerfið https://iba.felog.is/
 
Ef þú ert að fá þennan póst en barnið þitt er hætt að æfa endilega tilkynntu það með því að senda nafn og kennitölu barnsins á odinn@odinn.is
ATH

Ef það eru sérstakar ástæður fyrir að þið óskið eftir að bíða með að ganga frá greiðslu er mikilvægt að senda póst á gjaldkeri@odinn.is. Þeir sem ekki ganga frá skráningu eða hafa samband munu fá sendan greiðsluseðil fyrir æfingagjöldum og þá er ekki hægt að nota frístundastyrk.

Val er um að greiða með því að fá greiðsluseðla eða nota kreditkort (Visa og Mastercard) og hægt er að skipta greiðslunum í allt að 2-3 greiðslur fyrir önnina, fer eftir upphæð. Jafnframt er fólki gert kleift að innleysa tómstundaávísunina í gegnum kerfið með því að haka á viðkomandi stað. Athugið, að þeir sem hafa þegar nýtt allann frístundastyrkinn á árinu 2020 geta ekki nýtt hann núna fyrir haustæfingar. Akureyrarbær gefur hann út í janúar á hverju ári og er því endurnýjun í janúar 2021.
Ef fólk ætlar að nýta tómstundaávísanir Akureyrarbæjar, kr. 40.000 verður að muna að haka í „nota frístundastyrk“ . Ekki er hægt að leiðrétta eftirá og er íþróttafélögum bannað að endurgreiða þann pening skv. reglum bæjarins.
Við viljum vekja athygli á því að kostnaður fyrir hvern greiðsluseðil er kr. 390,- sem er greiðslu og þjónustugjald innheimt af Greiðslumiðlun. Sundfélagið Óðinn leggur þetta gjald ekki á og fær ekkert af því í sínar hendur. Þetta á einungis við greiðsluseðla, ekki er aukakostnaður þegar notað er kreditkort.
Að lokum viljum við benda á að skráning er bindandi fyrir önnina og endurgreiðir Sundfélagið Óðinn ekki æfingagjöld nema þá að um langvarandi veikindi eða slys á barni sé um að ræða. Allar slíkar beiðnir þurfa að berast til á netfangið odinn@odinn.is