Sjóræningjadagurinn í Glerárlaug 2026!

Þann 30. Október var svokallaður Sjóræningjadagurinn í Glerárlaug haldinn hátíðlegur. Hann er fyrir öll börn í sundskóla sundfélagsins Óðins. Þá bregðum við á leik og köfum eftir gulli og gersemum sem Krókur Skipstjóri hefur safnað sér í áranna rás.

Sjóræningjadagurinn var að þessi sinni haldinn hátíðlegur í 25. skipti (ef minni Króks er ekki að svíkja hann). Upphaflega var honum komið á til að hvetja byrjendur til að kafa og enn er það aðal tilgangur hans kennsllega séð en fyrst og fremst hefur hann reynst spennandi og skemmtilegur fyrir okkur öll.

Til að koma u.þ.b 200 börnum og 80-100 foreldrum fyrir á 3 klst. í jafn litlum búningsklefa og eru í Glerárlaug sér Krókur Skipstjóri um að skammta tíma á hópana og reka uppúr og ofaní.

Að lokinni fjarsjóðsköfun kvitta svo börnin fyrir í gestabók Króks.