RIG

Um helgina er komið að alþjóðlega RIG sundmótinu, eða Reykjavík International Games. Líkt og fyrri ár er þetta “heimagistingarmót” þannig að sundmenn félagsins ferðast og gista á eigin vegum.
Dagskrá mótsins er inni á heimasíðu mótsins http://www.rig.is
Sundmenn Óðins eiga eins og alltaf að vera mættir í upphitun klukkustund fyrir hvern mótshluta.
Óðinsfólk á að sjálfsögðu að halda hópinn á áhorfendapöllunum og einhverjir foreldrar munu skipta með sér
að vera með sjúkratöskuna og sjá um ávexti á bakkanum.
Óskum sundmönnum Óðins góðs gengis.