Ránarmótið á Dalvík 16. maí BREYTTUR TÍMI

Ránarmótið

Sundmót sem  Sundfélagið Rán á Dalvík heldur og Lions hreyfingin á Dalvík styrkir verður laugardaginn 16. maí nk. Keppt verður í Sundlaug Dalvíkur sem er 25 m * 12 m útilaug með fimm brautum. Handtímatökuklukkur eru notaðar.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir 1., 2. og 3. sæti í meyja og sveina flokki 12 ára og yngri, telpna og drengja flokki 13 – 14 ára og í karla og kvenna flokki 15 ára og eldri. Tíu ára og yngri fá  þátttakendaverðlaun.

Þjálfarar sjá um skráningar.

Skráningagjöld eru 1500 kr. og greiðist inn á reikning Óðins 0566-26-80180 kt. 580180-0519 í síðasta lagi á föstudag 15. maí.

Ferðast er á eigin vegum. Muna eftir að hafa með sér gott nesti.

Upplýsingar um útbúnað á útisundmót er að finna undir "upplýsingar - útbúnaðarlisti fyrir sundmót".

Greinauppröðun

Upphitun byrjar kl. 09:00 og mót hefst kl. 10:00. 
Síðan er bara að leggjast á bæn og óska eftir sól og góðu veðri. :)