Páskamót Óðins 10 apríl (tímasetningar Glerárlaug)

Þá er komið að Páskamótinu í Glerárlaug.

Það er svona sýningarmót eins og Gullmótið þar sem foreldrum er boðið að koma og horfa á. Krakkarnir fá öll verðlaun sem gefin eru af Samherja og markmiðið er að gera eins vel og maður getur. Til þess aðkoma öllum í sundskólanum fyrir verðum við að setja inn tímasetningar fyrir hópana en systkini geta alltaf komið saman á þeim tíma sem hentar best.

Mótið byrjar kl. 14.30 og líkur ekki fyrr en sá síðasti hefur synt um kl. 17.30 þannig að ef tími hentar ekki meðhóp þá má koma á öðrum tíma en þá er ekki sjálfgefið að viðkomandi barn syndi meðjafnöldrum sínum.

En sem sagt:
Fimmtudaginn 10. apríl í Glerárlaug mæta:

Höfrungar úr báðum laugum kl. 14.30
Gullfiskar úr báðum laugum kl. 15.00
Sæhestar 1(Glerárlaug)og Krossfiskar(Glerárlaug) kl.15.45

Sæhestar 2 og 3 (Glerárlaug) og Sæhestar (Ak.)kl. 16.15
Skjaldbökur (Glerárlaug) Kl.16.45

Þegar börnin hafa synt þá fara þau uppúr og heim því að það eru engar hefðbundnar æfingar þennan dag. Að loknu þessu móti er komið páskafrí.

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR þriðjudag 22. apríl samkvæmt stundaskrá.

Vonum að allir hafi gaman af.

Þjálfarar og stjórn Óðins.