Óðinn hlýtur styrk úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA.

KEA afhenti styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði félagsins, miðvikudaginn 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Menningarhúsinu Hofi. Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir formaður Óðins tók við styrknum fyrir hönd Óðins. Þetta var í 88. skipti sem sjóðurinn veitir styrki. Úthlutað var rúmum 15 milljónum króna til 42 aðila.  Óðinn þakkar KEA kærlega fyrir stuðninginn.

https://www.kea.is/is/um-kea/frettir/uthlutun-ur-menningar-og-vidurkenningasjodi-kea-5