Nú er sundárið loksins að hefjast á ný og er frábær vetur framundan.
Úrvals- og Afrekshópar eru byrjaðir á æfingum en aðrar æfingar byrja 1.september.
Það er alltaf mikil aðsókn í sundskólann hjá Dillu og fengum við færri tíma en við vonuðumst eftir og því miður komust ekki allir að. Allir þeir sem komust inn hafa fengið tilkynningar í gegnum Abler. Mikilvægt er að hafa það app því þar koma inn æfingar, skilaboð frá þjálfurum og aðrir uppbrotsdagar sem eru á stefnuskránni. Einnig geta foreldrar merkt inn mætingu/farveru hjá sínu barni ásamt því að senda skilaboð beint á þjálfar. Þeir sem ekki komust inn í sundskólann að þessu sinni eru enn á biðlista.
Stjórnin ásamt þjálfurum hefur unnið hörðum höndum að setja saman viðburðadagatal fyrir sundárið og hægt er að nálgast það hér á síðunni. Eins eru æfingartöflurnar klárar og ættu allir iðkendur að vera komnir með sínar æfingar inn á Abler.
Hlökkum til að eiga með ykkur frábært sundár!
Áfram Óðinn!