Námskeið. Verndum þau.

Ungmennasamband Eyjafjaðar, í samstarfi við Æskulýðsvettvanginn, mun standa fyrir námskeiðinu "Verndum þau" á Dalvík og Hrafnagili.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna. Farið verður yfir hvernig bregðast eigi við vanrækslu og/eða ofbeldi gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er byggt á bókinni Verndum þau. Á námskeiðinu verður farið yfir:

• Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.

• Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.

• Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. 13. nóvember Dalvíkurskóli, kl. 16:30-19:30 14. nóvember Félgagsborg á Hrafnagili kl. 16:30-19:30

Skráning fer fram í tölvupósti: umse@umse.is og í síma: 868-3820 Skráningarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 12. nóvember. Meðfylgjandi eru auglýsingar sem tilvalið er að áframsenda eða prennta út og hengja upp. Við hvetjum sem flesta til þess að skrá sig og mæta á námskeiðið. Frekari upplýsingar veitir skrifstofa UMSE