Myndir frá Sundþingi

Eins og fram hefur komið fékk Óðinsfólk ýmsar viðurkenningar á sundþingi á dögunum og hér koma nokkrar myndir. Birgir Þór Harðarson tók myndirnar í hófinu fyrir SSÍ.


Forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, Ólafur Rafnsson, sæmdi þá Siggeir Siggeirsson og Benedikt Sigurðarson gullmerki ÍSÍ. Þá fékk Benedikt einnig afhent gullmerki SSÍ á þinginu, sem hann hafði verið sæmdur fyrir nokkru síðan.

dómarar
Ólafur Baldursson og Gunnar V. Eiríksson voru í hópi alþjóðlegra dómara sem sæmdir voru silfurmerki SSÍ.

sundfolk
Dýrleif Skjóldal fékk ásamt fleirum afhent silfurmerki SSÍ fyrir framlags hennar til sundsins.

Fleiri myndir eru á heimasíðu SSÍ.