Minnum á aðalfund Óðins í kvöld

Allir foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að mæta og ræða hag barna sinna og leggja sitt af mörkum til eflingar félaginu og starfi þess.

Á dagskrá fundarins eru venjubundin aðalfundarstörf, svo sem skýrsla stjórnar 2012, ársreikningurinn, kjör stjórnar og nefnda og önnur mál. Veitingar í boði félagsins.

Framboð og tilnefningar til stjórnarsetu hafa þegar borist. Hlökkum til að sjá sem flesta foreldra og eigum notalega kvöldstund saman.

Kveðja
Stjórnin