Malmö Open 6-8 febrúar

Dagana 6.-8. febrúar fer fram opið íþróttamót fatlaðra í Malmö í Svíþjóð, Malmö Open(sjá malmo-open.com). 
Sjö keppendur frá Óðni munu taka þátt í mótinu en það eru þau:
Breki, Villi, Axel, Bjarki, Tinna, Rakel, Arndís

Þetta verður fjölskylduferð og telur hópurinn sem fer út samtals 19 manns.
Hópurinn leggur af stað frá Akureyri miðvikudaginn 4. feb og flýgur út til Köben 5. feb. Sundkeppnin stendur svo yfir á laugardag og sunnudag 7.-8. feb.
Við munum svo fara yfir til Kaupmannahafnar snemma á mánudagsmorgninum og eyða deginum þar í menningarrölt og almenn skemmtilegheit. 
Hópurinn lendir svo í Keflavík seint á mánudagskvöldinu 9. feb og kemur aftur norður daginn eftir.

Frekari fréttir af gangi mála munu berast meðan á ferðinni stendur.
Úrslit má einnig sjá á slóðinni: www.livetiming.se eða í gegnum heimsíðu mótsins: malmo-open.com.

Jón Heiðar