Kröfur vegna æfingagjalda birtast eingöngu í heimabanka


Þar sem stærsti hluti greiðanda hafði sent okkur beiðni um að fá kröfur vegna æfingagjalda eingöngu í heimabanka en ekki greiðsluseðil heim var ákveðið að prófa að senda eingöngu í heimabanka. Við sendum því enga greiðsluseðla núna.
Þetta sparar greiðanda einnig kostnað við að fá kröfuna senda þar sem við bætist 249 kr þegar krafa er send heim.

Þeir sem ekki hafa netbanka og vilja fá kröfur sendar heim til sín eru vinsamlegast beðnir um að senda póst á odinn@odinn.is