Keppendalisti AMÍ o.fl.

Þá er að styttast í hátíðina stóru, AMÍ 2011. Undirbúningur gengur vel og ljóst að allt verður klárt þegar keppni hefst síðdegis á morgun.

Inn á AMÍ-síðunni er að finna allar helstu upplýsingar um mótið. Nú er þar t.d. kominn inn keppendalisti. Endanlegar tímasetningar mótshluta eru í vinnslu en áætlaðar tímasetningar á síðunni miðast við mótið í fyrra. Þá er komið inn nýtt skjal með starfsmannalista.