Jón Ingi Einarsson stigahæstur á Íslandsmeistaramóti aldursflokka

Keppendur Óðins á lokahófi AMÍ 26.
Keppendur Óðins á lokahófi AMÍ 26.

Íslandsmeistaramót aldursflokka(AMÍ) 2026 fór fram í Reykjanesbæ dagana 19.–21. júní þar sem Sundfélagið Óðinn sendi 28 keppendur til leiks. Sundfélagið Óðinn hafnaði í 5. sæti í liðakeppninni og hlaut jafnframt hinn eftirsótta titil "Prúðasta lið mótsins" sem að endurspeglar virkilega góða stemningu innan liðsins.

Jón Ingi Einarsson frá Sundfélaginu Óðni var stigahæsti sundmaður mótsins í flokki 14–15 ára drengja. Hann sigraði í öllum sínum fimm greinum og varð Íslandsmeistari í 100 m bringusundi, 100 m skriðsundi, 200 m skriðsundi, 200 m fjórsundi og 400 m fjórsundi.

 

Íslandsmeistarar aldursflokka frá Sundfélaginu Óðni:

Jón Ingi Einarsson – 100 m bringusund, 100 m skriðsund, 200 m skriðsund, 200 m fjórsund og 400 m fjórsund

Björn Elvar Austfjörð – 200 m bringusund

Þór Bjarnar Kristjánsson – 50 m bringusund

Silfurverðlaun:

Björn Elvar Austfjörð – 100 m bringusund

Bronsverðlaun:

Björn Elvar Austfjörð – 800 m skriðsund

Stella Hansen – 50 m flugsund, 50 m skriðsund

Ösp Óladóttir – 100 m bringusund, 100 m fjórsund

Sunna Berglind Steinarsdóttir – 100 m baksund

Hrafney Eiríksdóttir – 200 m baksund

Þór Bjarnar Kristjánsson – 100 m bringusund, 50 m flugsund

Mikill meirihluti keppenda Sundfélagsins Óðins bættu árangur sinn á mótinu og var stemningin í hópnum til fyrirmyndar. Óðinn óskar sundmönnum til hamingju með glæsilegan árangur og þakkar þjálfurum, fararstjórum, foreldrum og öllum þeim sem komu að mótinu fyrir þeirra framlag.

 

Jón Ingi Einarsson stigahæsti sundmaðurinn í 14 - 15 ára aldursflokki drengja.