Hildur Sólveig nýr þjálfari hjá Sundfélaginu Óðni

Sundfélagið Óðinn hefur ráðið Hildi Sólveigu Elvarsdóttur sem sundþjálfara hjá félaginu. Hildur Sólveig er fyrrum sundmaður en hún hóf sundferilinn sinn í Bandaríkjunum þar sem hún ólst upp. Þegar hún flutti til Íslands synti hún og þjálfaði hjá sundfélaginu Ægi í Reykjavík og svo í framhaldinu hjá sundfélaginu Óðni fyrir nokkrum árum síðan.

Félagið er virkilega ánægt með þessa frábæru viðbót við öflugt þjálfarateymi sundfélagsins og býður Hildi Sólveigu velkomna aftur til okkar. Hildur Sólveig tekur við Framtíðarhóp af Viktori Emil Sigtryggssyni. Sundfélagið þakkar Viktori kærlega fyrir gott starf í þágu félagsins.