Heiðar Ólason nýr formaður sundfélagsins.

Á aðalfundi Óðins í gærkvöld var kosinn nýr formaður. Halla Bergþóra Halldórsdóttir gaf ekki kost á sér áfram til formanns. Hún snýr sér nú að krefjandi verkefni. Sundfélagið þakkar henni vel unnin störf og óskum við henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur.
Einnig bauð Arnar Snorrason sig ekki áfram til stjórnarsetu. Honum eru einnig þökkuð vel unnin störf og velfarnaðar í framtíðinni.

Við bjóðum nýja stjórnarmeðlimi velkomna Heiðar Ólason formann og Ómar Kristinsson meðstjórnanda.

Ný stjórn Óðins fundar nk. mánudag og skiptir þá með sér verkum.