Gullmót KR 7.-9. febrúar.

Gullmót KR 2014 fer fram í Laugardalslaug 7-9. febrúar í 50 m braut. Á þetta mót fara sundmenn Óðins í Afrekshópi, Úrvalshópi, Framtíðarhópi. Mótið er opið öllum aldursflokkum þar sem keppt er i 78 greinum í 6 mótshlutum, auk KR Super Challenge á laugardagskvöldi, þar sem keppt er í 50 m skriðsundi.

Ferðatilhögun
Farið verður með rútu frá planinu sunnan við Íþróttahöllina stundvíslega kl. 9 að morgni föstudagsins 7. febrúar og til baka á sunnudag 9. febrúar að móti loknu um kl 18:00.

Gisting og matur er í Laugalækjarskóla rétt hjá sundlauginni. Fréttabréf Gullmót KR

Skráningar Óðins

Búnaður:
Sundföt, gleraugu, sundhetta
Handklæði 2-3
Skór til að vera í á bakkanum
Hlýir sokkar
Óðinsgalli, bolur
Vatnsbrúsi

Til gistingar í skóla:
Vindsæng/dýna
Sæng/svefnpoki
Koddi/lak
Náttföt
Tannbursti og tannkrem

Nesti - peningur:
Sundmenn þurfa að hafa með sér nesti fyrsta daginn en fá kvöldmat í skólanum strax fyrsta kvöldið. Þá getur verið gott að eiga eitthvað hollt og gott til að narta í yfir helgina, t.d. gróft kex og ávaxtasafa. Sælgæti og sætabrauð er stranglega bannað. Þá þurfa sundmenn að hafa pening meðferðis til að kaupa sér næringu áður en lagt verður af stað heim á sunnudag, 1.500-2000 kr. Fararstjórar geta geymt pening. Stoppað verður á leiðinni og t.d. pantað pizzuhlaðborð fyrir alla sem vilja.

Fararstjórar:
1.Ómar ( Þórkatla, Elísabet og Katrín, Úrvalshópi) 867 8194
2. Arnar (Rannveig í Úrvalshópi) 861 4049
3. Sigrún (Embla Sól Úrvals og Eva Sól Framtíðar) 868 9269  865 3400
4. Sigrún Helga (Guðný Helga framtíðar) 897 6712

Þjálfarar:
Ragnheiður Runólfsdóttir, Ingibjörg Isaksen og Pétur Birgisson

Kostnaður:
Heildarkostnaður á mann er 15.000 þúsund kr. . Upp í það getur hver og einn nýtt það sem hann kann að eiga úr einstaklingsfjáröflunum. Upplýsingar um inneign gefur fjáröflunarnefnd sundfélagsins, fjaroflun@odinn.is. Leggist inn á reikning Óðins 0566-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir brottför.

Sundurliðun kostnaðar pr. sundmann:
Matur og gisting 10.500 (keypt af KR)
Rúta 6.500
Bakkanesti 1000
Greinar 3.000
Farstjórn+þjálfarar 3.000
Samtals: 24.000
Niðurgreitt um 9000 kr. Samherjastyrkur.
Heildarkostnaður pr. keppanda er því 15.000.

Mikilvægt:
Þeir sem ekki ætla að nýta sér rútuna  þurfa að koma upplýsingum um það til gjaldkera fyrir föstudaginn 31. janúar.  Að öðrum kosti þarf að greiða fullt gjald. Þeir sem fara hvoruga leið með rútunni eru undanþegnir rútugjaldinu 6500 kr og greiða þeir því 8500 kr.
Ef keppendur en eru algjörlega á eigin vegum, þ.e. ætla ekki að gista og borða í skólanum með krökkunum þá þarf einnig að gefa upplýsingar um það fyrir föstudaginn 31. janúar þar sem við pöntun þá. odinn@odinn.is.

Áríðandi:
Ef barn er með fæðuofnæmi, annarskonar ofnæmi eða er á lyfjum er mikilvægt að foreldrar setji sig í samband við fararstjóra.

Fylgist áfram með hér á síðunni því nánari upplýsingar koma inn.