Árlega Gullmót KR fór fram í Laugardalslaug dagana 13.–15. febrúar. Alls voru 426 sundmenn skráðir til leiks og sendi Sundfélagið Óðinn 41 keppanda á mótið.
Það sem gerir Gullmót KR einstaklega spennandi er hið svokallaða „Super Challenge“, þar sem átta hröðustu keppendur í 50m flugsundi í hverjum aldursflokki tryggja sér sæti í úrslitum. Þar er keppt við skemmtilega umgjörð með ljósasýningu og tónlistin hækkuð.
Jón Ingi Einarsson tryggði sér sigur í 13–15 ára aldursflokknum með afgerandi frammistöðu og Hrafney Eiríksdóttir stóð sig frábærlega og hafnaði í öðru sæti í flokki 12 ára og yngri.

