Gullmót KR 2016

Gullmót KR 2016 fer fram í Laugardalslaug 12-14 febrúar í 50 m braut. Á þetta mót fara sundmenn Óðins í Afrekshópi, Úrvalshópi, Framtíðarhópi. Mótið er opið öllum aldursflokkum þar sem keppt er i 60 greinum í 6 mótshlutum, auk KR Super Challenge á laugardagskvöldi, þar sem keppt er í 50 m skriðsundi.

Upplýsingar og greinaröðun

Ferðatilhögun:
Farið verður með rútu frá planinu sunnan við Íþróttahöllina stundvíslega kl. 9 að morgni föstudagsins 12. febrúar og til baka á sunnudag 14. febrúar að móti loknu um kl 18:00.

Gisting og matur er í Laugalækjarskóla rétt hjá sundlauginni.

Skráningar Óðins

Búnaður:
Sundföt, gleraugu, sundhetta
Handklæði 2-3
Skór til að vera í á bakkanum
Hlýir sokkar
Óðinsgalli, bolur
Vatnsbrúsi

Til gistingar í skóla:
Vindsæng/dýna
Sæng/svefnpoki
Koddi/lak
Náttföt
Tannbursti og tannkrem

Nesti - peningur:
Sundmenn þurfa að hafa með sér nesti fyrsta daginn en fá kvöldmat í skólanum strax fyrsta kvöldið. Þá getur verið gott að eiga eitthvað hollt og gott til að narta í yfir helgina, t.d. gróft kex og ávaxtasafa. Sælgæti og sætabrauð er stranglega bannað. Þá þurfa sundmenn að hafa pening meðferðis til að kaupa sér næringu áður en lagt verður af stað heim á sunnudag 1500 kr. Fararstjórar geta geymt pening. Stoppað verður á leiðinni og t.d. pantað pizzuhlaðborð fyrir alla sem vilja.

Fararstjórar:
Birkir (Kristófer Óli Úrvalshópi). Ferðast ekki með rútu. Er fyrir sunnan. S: 660 2638
Júlía ( Hulda Vala Framtíðarhópi) S: 895 5447
Hildur Þórbjörg (fyrrverandi sundkona) S: 848 0762 
Freysteinn Viðar (Fyrrverandi sundmaður) S: 693 5379

Þjálfarar:
Ragnheiður Runólfsdóttir.

Kostnaður:
Heildarkostnaður 24.000. Upp í það getur hver og einn nýtt það sem hann kann að eiga úr einstaklingsfjáröflunum. Upplýsingar um inneign gefur fjáröflunarnefnd sundfélagsins,fjaroflun@odinn.is. Leggist inn á reikning Óðins 0566-26-80180 kt. 580180-0519 fyrir brottför.

Sundurliðun kostnaðar pr. sundmann:
Matur og gisting (keypt af KR) 10.500
Rúta 7500
Bakkanesti 1000
Þjálfarar og fararstjórar 2500
Stungugjöld 2500
Heildarkostnaður 24.000.


Mikilvægt:
Þeir sem ekki ætla að nýta sér rútuna  þurfa að koma upplýsingum um það til gjaldkera fyrir föstudaginn 5. febrúar að öðrum kosti þarf að greiða fullt gjald. Þeir sem fara hvoruga leið með rútunni eru undanþegnir rútugjaldinu 7.500 kr og greiða þeir því 16.500 kr.
Ef keppendur en eru algjörlega á eigin vegum, þ.e. ætla ekki að gista og borða í skólanum með krökkunum þá þarf einnig að gefa upplýsingar um það fyrir föstudaginn 5. febrúar þar sem við pöntun þá. odinn@odinn.is.

Áríðandi:
Ef barn er með fæðuofnæmi, annarskonar ofnæmi eða er á lyfjum er mikilvægt að foreldrar setji sig í samband við fararstjóra.

Fylgist áfram með hér á síðunni því nánari upplýsingar koma inn.